Innskráning í Karellen

Hjalli

Hjalli, Hjallabraut 55, Hafnarfirði
Sími: 565-3060, Netfang: hjalli(hjá)hjalli.is
Leikskólastjóri: Ásdís Eydal
Fjöldi barna er 155 og fjöldi starfsfólks er 50.

Hjallabraut 55, 220 Hafnarfirði

Þann 25. september 1989 opnaði Hafnarfjarðarbær leikskólann Hjalla í Hafnarfirði og réði til starfa leikskólastjórann Margréti Pálu Ólafsdóttur, sem þá hafði um árabil starfað sem leikskólastjóri hjá Reykjavíkurborg auk þess að starfa sjálfstætt við ráðgjöf fyrir dagvistarstofnanir. Í leikskólanum Hjalla eru átta kynjaskiptir kjarnar (deildir) og unnið er eftir Hjallamódeli þar sem unnið er eftir kynjanámskrá Hjallastefnunnar. Þar er lögð áhersla á einstaklings- og félagslega þætti í sex lotum yfir skólaárið. Í Hjalla er meðal annars lögð áhersla á jafnrétti, jákvæðni, hreinskiptni og sjálfstæði. Leikefni er nokkuð óhefðbundið í leikskólanum, en það snýr að sköpunarkrafti og ímyndunarafli barnanna fremur en að vera stýrandi í leik.


Árið 2000 stofnaði Margrét Pála fyrirtækið Hjallastefnuna ehf. til þess að geta tekið sjálf við rekstri Hjalla á grundvelli þjónustusamnings við Hafnarfjarðarbæ og rekur fyrirtækið nú einnig leik- og grunnskóla víða um landið. Hjallastefnan er svokallað „núll-rekstrarfyrirtæki" sem hefur það markmið eitt að stuðla að jafnrétti auk þess að reka góða skóla.

Námsskrá Hjallastefnunnar hefur notið sívaxandi velgengni og virðingar undanfarin ár og hefur hlotið sérstakt lof fyrir áherslu sína á jafnréttisuppeldi, þar á meðal hlaut Hjallastefnan viðurkenningu Jafnréttisráðs Íslands árið 1996 fyrir sérstakt átak í jafnréttismálum og Hjalli hlaut hvatningarverðlaun Jafnréttisnefndar Hafnarfjarðar árið 2001.

Hjallastefnan er nokkuð þekkt erlendis og skólarnir fá til sín hundruði erlendra gesta ár hvert.

© 2016 - Karellen