Bláikjarni
Kjarnastjóri: Signý Líndal Sigurðardóttir
Fjöldi nemenda er 22 og fjöldi starfsmanna er 4.
Velkomin á Bláakjarna Bláikjarni er stúlknakjarni og þar eru kátar og líflegar þriggja til fjögurra ára stúlkur. Stóran hluta úr degi er stúlkunum skipt í 4 hópa Þ-hóp, Æ-hóp, Ö-hóp og Á-hóp og á hver hópur sinn fasta kennara allan veturinn. Í hópunum vinna stúlkurnar skemmtileg verkefni með kennurunum sínum og æfa sig til dæmis í framkomu, umhyggju, samskiptum, kjarki, myndmennt, umhverfismennt, vísindum og ótal mörgu öðru. Daglega hittir hver hópur á Bláakjarna vinahópinn sinn og jafnaldra, drengina á Rauðakjarna. |