Innskráning í Karellen

Rauðikjarni

Kjarnastjóri: Bryndís Eyjólfsdóttir
Fjöldi nemenda er 22 og fjöldi starfsfólks er 4.

Velkomin á Rauðakjarna

Rauðikjarni er drengjakjarni og þar eru ljúfir og kátir þriggja til fjögurra ára drengir. Stóran hluta úr degi er drengjunum skipt í 4 hópa Þ-hóp, Æ-hóp, Ö-hóp og Á-hóp og á hver hópur sinn fasta kennara allan veturinn. Í hópunum vinna drengirnir skemmtileg verkefni með kennurunum sínum og æfa sig til dæmis í framkomu, umhyggju, samskiptum, kjarki, myndmennt, umhverfismennt, vísindum og ótal mörgu öðru.

Daglega hittir hver hópur á Rauðakjarna vinkonuhópinn sinn og jafnöldrur, stúlkurnar á Bláakjarna.

© 2016 - Karellen