Hvítikjarni
Kjarnastjóri: Bjarki Benediktsson
Fjöldi nemenda er 13 og fjöldi starfsfólks er 3.
Velkomin á Hvítakjarna Hvítikjarni er stúlknakjarni og hluti af Yngri einingu Hjalla. Þar eru kátar og glaðar 14 mánaða til tveggja og hálfs árs stúlkur. Stóran hluta úr degi er stúlkunum skipt í 3 hópa Þ-hóp, Æ-hóp og Ö-hóp og á hver hópur sinn fasta kennara allan veturinn. Í hópunum vinna stúlkurnar skemmtileg verkefni með kennurunum sínum og æfa sig til dæmis í framkomu, umhyggju, samskiptum, kjarki, myndmennt, umhverfismennt, vísindum og ótal mörgu öðru. Daglega hittir hver hópur á Hvítakjarna vinahópinn sinn og jafnaldra, drengina á Bleikakjarna. |