Fjólubláikjarni
KJarnastjóri: Margrét Benediktsdóttir
Fjöldi nemenda er 15 og fjöldi starfsfólks er 3.
Velkomnar á Fjólubláakjarna Fjólubláikjarni er staðsettur í miðeiningu Hjalla. Fjólubláikjarni er stúlknakjarni og þar eru kátar tveggja og þriggja ára fjörugar stúlkur. Stóran hluta úr degi er stúlkunum skipt í 3 hópa og á hver hópur sinn fasta kennara allan veturinn. Í hópunum vinna stúlkurnar skemmtileg verkefni með kennurunum sínum og æfa sig til dæmis í framkomu, umhyggju, samskiptum, kjarki, myndmennt, umhverfismennt, vísindum og ótal mörgu öðru. Reglulega hittir hver hópur á Fjólubláakjarna vinahópinn sinn og jafnaldra, drengina á Appelsínugulakjarna. Frekari upplýsingar um kennarana er að finna annars staðar á síðunni. |