Innskráning í Karellen

Bleikakjarna

Kjarnastjóri: Anna Helga Björnsdóttir

Fjöldi nemenda er 13 og fjöldi starfsfólks er 3.


Velkomin á Bleikakjarna

Bleikikjarni er drengjakjarni og hluti af Yngri einingu Hjalla. Þar eru ljúfir og fjörugir fjórtán mánaða til tveggja og hálfs árs drengir. Stóran hluta úr degi er drengjunum skipt í 3 hópa Þ-hóp, Æ-hóp og Ö-hóp og á hver hópur sinn fasta kennara allan veturinn. Í hópunum vinna drengirnir skemmtileg verkefni með kennurunum sínum og æfa sig til dæmis í framkomu, umhyggju, samskiptum, kjarki, myndmennt, umhverfismennt, vísindum og ótal mörgu öðru.

Daglega hittir hver hópur á Bleikakjarna vinkonuhópinn sinn og jafnöldrur, stúlkurnar á Hvítakjarna.

© 2016 - Karellen