Appelsínugulikjarni
Kjarnastjóri er Hera Björk Þormóðsdóttir
Fjöldi nemenda er 15 og fjöldi starfsfólks er 3.
Velkomnir á Appelsínugulakjarna Appelsínugulikjarni er staðsettur í miðeiningu Hjalla. Appelsínugulikjarni er drengjakjarni og þar eru ljúfir og fjörugir tveggja til þriggja ára drengir. Stóran hluta úr degi er drengjunum skipt í 3 hópa og á hver hópur sinn fasta kennara allan veturinn. Í hópunum vinna drengirnir skemmtileg verkefni með kennurunum sínum og æfa sig til dæmis í framkomu, umhyggju, samskiptum, kjarki, myndmennt, umhverfismennt, vísindum og ótal mörgu öðru. Reglulega hittir hver hópur á Appelsínugulakjarna vinkonuhópinn sinn og jafnöldrur, stúlkurnar á Fjólubláakjarna. Frekari upplýsingar um kennarana er að finna annars staðar á síðunni. |