Innskráning í Karellen
news

Kvennaverkfall, Hjalli lokar

23. 10. 2023

Fjölmörg samtök kvenna, kynsegin fólks og launafólks hafa boðað til kvennaverkfalls þriðjudaginn 24. október 2023, þar sem konur og kvár eru hvött til að leggja niður launuð og ólaunuð störf. Ljóst er að veruleg röskun verður á öllu samfélaginu þennan dag og gera má ráð fyrir að áhrifin verði mikil í leikskólum, barnaskólum og frístund Hjallastefnunnar þar sem stærsti hluti starfsfólksins þar eru konur eða kvár.

Ein af grunnstoðum Hjallastefnunnar er jafnrétti og styður Hjallastefnan heilshugar jafnréttisbaráttu kvenna og kynsegin fólks og leitar því til forráðafólks að sýna þessari baráttu skilning.

Á Hjalla eru konur í miklum meirihluta starfsfólks og við tökum allar þátt í verkfallinu og því er skólinn lokaður 24. október 2024. Við fylkjum liði á Arnarhól og leggjum baráttunni lið með von um það að komandi kynslóðir muni ekki búa við kynbundið launamisrétti og ofbeldi.


© 2016 - Karellen