Innskráning í Karellen
news

Gleðilega aðventu

04. 12. 2023

Það er komin hefð fyrir því að elstu börnin okkar í Þ-hópum, leggi leið sína í Jólaþorpið í Hafnarfirði til að skreyta jólatré með skrauti sem þau búa til í leikskólanum. Þemað í ár var skógur og þau skreyttu grenigreinar sem þau hengdu á tréið fína í Jólaþorpinu.

?Þau tóku með sér piparkökur og heitt kakó og skemmtu sér afar vel.
❤️

Aðventan hófst í gær og við hlökkum til að eiga notalegar stundir hér á Hjalla. Við brjótum upp hversdagsleikann með ýmsum uppákomum tengdum jólum í desember en gætum þess að börnin eigi hér skjól fyrir þeim ys og þys sem fylgir þessari árstíð og við fylgjum okkar frábæru röð, reglu og rútínu nú sem áður❤️

Gleðilega aðventu!

© 2016 - Karellen