Innskráning í Karellen
news

Útskriftarferð 5 ára barna

24. 05. 2017

Í síðustu viku fóru öll fimm ára börnin okkar í tveggja nátta útskriftarferð í Vatnaskóg. Að venju var mikið fjör í ævintýraheimi Vatnaskógs. Útskriftarferð í tvær nætur með fimm ára börnum er árlegur viðburður á Hjalla. Þá fá kennarar og börn dásemdartíma saman áður en að kveðjustund kemur og börnin fara á vit ævintýra grunnskólans.

© 2016 - Karellen