Innskráning í Karellen
news

Líf og fjör í Hjalla

24. 04. 2018

Með hækkandi sól og hlýnandi veðri breytist útiklæðnaður hjá okkur á Hjalla. Börnunum finnst þægilegt að geta nú smeygt sér í léttari skó, úlpu og húfu fyrir útiveruna og leikirnir breytast í betri tíð.

Engu að síður er kul í lofti og því gott að vera með hlýjar peysur og ýmiskonar búnað í hólfinu. Landið okkar er svo ævintýragjarnt að við vitum aldrei hvernig veður það býður okkur upp á yfir daginn .

Við minnum á myndir á lokuðu fjölskyldusvæði á Karellen.

Gleðilegt sumar yndislegu fjölskyldur.

© 2016 - Karellen