Innskráning í Karellen
news

Gjöf til Hjalla

02. 09. 2019

Leikskólanum barst gjöf frá Bryndísi Guðmundsdóttur, talmeinafræðingi og vinkonu okkar, sem inniheldur grunnefni Lærum og leikum með hljóðin, R og S bækur ásamt fleira efni.

Við nýtum nú þegar allt þetta efni og er þessi gjöf góð viðbót því nú getum við lánað foreldrum efni óski þeir eftir því, t.d. til að æfa stök hljóð eins og R og S eða hvað sem þarf í hvert einstakt skipti.

Fjöldi myndbanda á Youtube rásinni laerumogleikum, m.a. um hvernig best er að nota efnið og vefnámskeið um notkun smáforritana.

Við erum afskaplega glöð og þakklát með þessa gjöf sem mun nýtast vel í leik og starf og hvetjum ykkur til að nýta það sem þið teljið að nýtist vel.

© 2016 - Karellen