Innskráning í Karellen
news

Samskiptalotan

07. 11. 2022

Þriðja lota vetrarins er samskiptalota.

Lotulyklarnir eru umburðarlyndi, hjálpsemi, víðsýni og samstaða.

Samskiptalota er miðstig félagsþjálfunar og í þessari lotu eru samvinnuverkefni efst á baugi. Þessi lota er eineltisáætlun okkar og því mjög mikilvæg lota. Við fjöllum um samskipti í sinni víðustu mynd og nemendum er kennt að virða landamæri hvors annars og standa saman um jákvæða hegðun og framkomu.

Í samskiptalotu er tilvalið að fjalla um fjölmenningu, fötlun og ólík sambúðarform. Rétta fram hjálparhönd eins og elstu hóparnir eru að gera með jól í skókassa. Við leggjum okkur fram við að finna verkefni sem ýta undir samstöðu og skapar hópstolt.

Jákvæð hugsun verður að ríkja hvað sem gengur á og við þurfum að hætta í blóraböggulshugsun. Við munum leggja okkur fram við að veita hverju einasta barni ómælda athygli, við ætlum að verum snögg að grípa inn í um leið og neikvætt orð heyrist og stoppum það af. Við ætlum að hætta að ásaka og spyrja hver gerði hvað. Við ætlum frekar að spyrja hvernig við getum lagað þetta og svo gengur betur næst. Það er okkur mikilvægt að heimilin taki þátt í þessu með okkur.

Hér eru nokkrir áherslupunktar:

  1. Minnkum mistakaóttann
  2. Minnkum sektarkenndina ef óhapp verður
  3. Ræðum um stríðni og bögg
  4. Huggum vinkonur og vini
  5. Vináttuæfingar - Við erum öll vinkonur og vinir
  6. Sköpum hópstolt
  7. Hjálpum þeim sem minni eru og þurfa aðstoð
  8. Höldumst í hendur í morgunsamveru og sendum ljósið til þeirra sem eru veik
  9. Æfum jafnræði og sanngirni og kennum með því réttlætishugsun



© 2016 - Karellen