Innskráning í Karellen
news

Samskiptalota

02. 11. 2020

Í dag hefst þriðja lota vetrarins, samskiptalota. Sú lota miðar að félagslegri þjálfun.

Lotulyklarnir eru umburðarlyndi, hjálpsemi, víðsýni og samstaða.

Í þessari lotu eru samvinnuverkefni af ýmsu tagi efst á baugi. Tveir/tvær og tveir/tvær og fleiri eru saman í verkefnum, samvinna er í kynjablönduninni og samvinna milli eldri og yngri kjarna. Þessi lota er í raun eineltisáætlun Hjallastefnunnar því hér er fjallað um samskiptin í sinni víðustu mynd, nemendum kennt að virða landamæri annarra og standa saman um jákvæða framkomu og jákvæða hegðun, enda má segja að þessi lota snúist um félagslega jákvæðni. Hér er kjörið að fara í verkefni s.s. um fjölmenningu og fjölbreytt þjóðerni, ólík sambúðarform fólks, fötlun og fleira sem skapar sérstöðu í samfélaginu. Hér er einnig kjörið að kjarni og skóli rétti öðrum hjálparhönd á skipulagðan hátt s.s. með heimsóknum á sjúkrahús og elliheimili, sjálfboðastarfi fyrir Rauða krossinn eða heimsæki smábarnaskóla og hjálpi litlu börnunum. Loks er mikilvægt að vinna að verkefnum sem ýta undir samstöðu og samkennd kjarna eða skóla og skapa jákvætt hópstolt.



© 2016 - Karellen