Innskráning í Karellen
news

Vorhreingerning og vorhátíð

07. 06. 2019

Í vikunni stóð foreldrafélag Hjalla fyrir vorhreingerningu og vorhátíð.

Fjölskyldur hittust á miðvikudaginn og hreinsuðu til og fegruðu umhverfi skólans. Í gær var svo hátíð á leikskólalóðinni. Þar var boðið upp á léttar veitingar, sápukúlustöð, spjall og söng. Og hápunkturinn var söngatriði hvers kjarna fyrir sig. Börnin bræddu hjörtu viðstaddra með kraftmiklum og fallegum söng og dansi.


© 2016 - Karellen