Innskráning í Karellen
news

Skapandi starf í Hjalla

15. 01. 2019

Í Hjalla er fjölbreytt og skapandi starf. Unnið er eftir kynjanámskránni þar sem einstakling - og félagsfærni er æfð sérstaklega með ýmis konar verkefnum. Auk þess eru börnin í enskusmiðjum, jóga og ýmiskonar listsköpun.

Útiveran er stór liður á hverjum degi og fögnum við fjölbreyttu veðurfari sem býður alltaf upp á ný verkefni og ævintýri. Rigningin kemur með polla, snjórinn með birtu og skemmtilegan byggingarefnivið og brekkur til að renna í, rokið býður okkur upp á kjarkæfingar og svo mætti lengi telja.

Þessa dagana vinnum við markvisst með jákvæðni, bæði börn og fullorðnir, þar sem lotulyklarnir eru ákveðni, hreinskiptni, bjartsýni og gleði.

© 2016 - Karellen