Innskráning í Karellen
news

Pétur og úlfurinn í Hjalla

30. 09. 2019

Afmælisvikunni lauk á föstudaginn með brúðuleikshússýningu fyrir öll börn skólans.

Þá kom snjalli Bernd Ogrodnik og setti upp brúðuleikhús í salnum okkar og sýndi tvær sýningar af Pétri og Úlfinum.

Börnin fylgdust hugfangin með sýningunni og yndislegt að sjá gleðina sem skein úr andlitum. Þolinmæði þeirra yngstu var örlítið styttri en þeirra elstu en öll nutu þau a.m.k. hluta af sýningunni og flest sátu alla sýninguna.

Við erum í skýjunum yfir skemmtilegra afmælisviku og þökkum öllum innilega fyrir sem sáu sér fært að koma og samgleðjast með okkur!

© 2016 - Karellen