Innskráning í Karellen
news

Nýárskveðjur

09. 01. 2019

Börn og fullorðnir í Hjalla óskar öllum gleðilegs nýs árs og þakkar fyrir samveru og ljúfar stundir á liðnum árum.

Árið 2019 lofar góðu. Orkan er mikil í húsi, verkefnin fjölbreytt eins og áður og börn og starfsfólk full eftirvæntingar að lenda saman í nýjum ævintýrum.

Jákvæðnilotan okkar er hafin og við hlökkum til að daginn fari að lengja í útiverunni okkar en njótum rökkursins á meðan það er.

Tónlistarsmiðja 5 ára barna er komin á fullt og jógað okkar hefst aftur á næsta mánudag. Þessa vikuna eru stúlkur í enskusmiðju en drengirnir í næstu viku.


© 2016 - Karellen