Innskráning í Karellen
news

Maxímús Músíkús í heimsókn

01. 03. 2018

Yngstu vinkonur okkar og vinir í Hjalla fengu dásamlega heimsókn í dag. Það var hann Maxímús Músíkús sem kom ásamt Dagnýju flautuleikara.

Börnin hlustuðu hugfangin á söguna, heyrðu tóndæmi og dönsuðu með Maxa. Að lokum fengu þau bókamerki að gjöf og þau hugrökkustu fengu að taka í skottið á þessari krúttlegu tónelsku mús.

Foreldrafélagið bauð yngstu börnunum upp á þessa sýningu en eldri börnin fóru á jólaleikrit á aðventunni í boði foreldrafélagsins.



© 2016 - Karellen