Innskráning í Karellen
news

Jólasöngfundur

15. 12. 2017

Í dag var hátíðleg stund á Hjalla þegar jólasöngfundir fóru fram. Við vorum svo heppin að fá foreldraframlag en hann Sigurður pabbi Braga á Rauðakjarna spilaði undir sönginn okkar á gítar.

Sungin voru jólalög, hátíðleg og hress í bland, og það var fallegt að sjá augu barnanna þegar þau horfðu á jólaljósin á trénu okkar í salnum.

Við fundum frið og jólastemningu í hjörtunum og hlökkum til að njóta samverustunda hér á Hjalla það sem eftir er af aðventunni.

Í hádeginu var svo boðið upp á sparimat, hangikjöt og meðlæti og nónhressingin var með óhefðbundnum hætti þegar börnin fengu kakó, ís, piparkökur og mandarínur að gæða sér á.





© 2016 - Karellen