Í dag kom góður gestur til okkar í Hjalla. Þórdís Arnljótsdóttir leikkona lék fyrir okkur jólaleikritið "Jól í tösku".
Börnin voru mjög spennt og góðir áhorfendur og þátttakendur.
Jólaleikritið er alltaf í boði foreldrafélagsins og erum við afskaplega þakklát fyrir það.