Innskráning í Karellen
news

Gleðilegt nýtt skólaár

15. 08. 2019

Nú eru fjölskyldur og starfsfólk komin til baka úr sumarleyfi og það er bjart yfir nýju skólaári.

Hjalli verður 30 ára þann 25. september og því verður fagnað þegar þar að kemur.

Alls staðar má sjá brosandi andlit, stór sem smá, sem gleðjast yfir því að vera komin aftur, en önnur sem eru að stíga sín fyrstu skref í Hjalla.

Við hlökkum til vetrarins og alls sem hann kann að hafa upp á að bjóða.

© 2016 - Karellen