Góða veðrið hefur heldur betur verið nýtt og nú er framhlið Yngri einingar komin í sparifötin.
Málningarvinna átti sér stað í síðustu viku undir dyggri verkstjórn Elfu Sifjar.
Margir foreldrar komu til aðstoðar og buðu þannig upp á fjölskylduframlag.
Í Hjallastefnuskólum teljum við afar mikilvægt að byggja upp trausta samvinnu við fjölskyldurnar okkar. Þannig geta fjölskyldur lagt sitt af mörkum til skólastarfsins á einn eða annan hátt og lagt fram vinnustundir og/eða verkefni að eigini vali, endurgjaldslaust.
Takk kæru foreldrar sem tókuð þátt með okkur í þetta skipti!