Þær Pernille og Maja eru að ljúka veru sinni hér í Hjalla í dag.
Eins og áður sagði þá eru þær nemar í leikskólafræðum í Danmörku og hafa kynnt sér Hjallastefnuna, kennsluhætti og aðferðir.
Þær komu færandi hendi og gáfu okkur spil sem æfir meðal annars orðaforða. Þegar spilið kom inn á Drengjakjarna fóru þeir að ræða um hvernig þær gætu þakkað fyrir gjöfina.
Það varð úr að þeir ákváðu að skrifa kort og baka köku. Þær bjóða svo Pernille og Maju í kaffi eftir hádegismatinn.
Yndisleg vináttuhugsun sem lýsir kærleika og samkennd.