Innskráning í Karellen
news

Áræðnilotan hefst á mánudaginn

13. 03. 2019

Mánudaginn 18. mars hefst áræðnilotan sem er sjötta og síðasta lota skólaársins, lotulyklarnir sem við vinnum með eru kjarkur, kraftur, virkni og frumkvæði. Þessari síðustu lotu er ætlað að reka smiðshöggið á heildarstarf vetrarins hvað varðar persónuþroska, bæði í einstaklings- og félagslegu tilliti og skilning barnanna á fjölþættum eiginleikum og mannlegri hæfni. Hér er fengist við leiðtogahæfileika og hæfni til að þora að standa fyrir sínu máli. Næstu vikurnar verður lögð áhersla á að búa til sterka sjálfsmynd, hjá börnum sem geta allt sem þau vilja. Sérstök áhersla verður að hvetja stúlkurnar að þenja út brjóstkassann og læra að taka sitt olnbogarými . Við ætlum að brjóta hugarramma og víkka út kynjaímynd, gera óvenjulega hluti, fara út fyrir þægindarammann og leyfa sér að mistakast. Því öllum mistekst eitthverntíman, það gengur bara betur næst!

© 2016 - Karellen