Hjallastefnan byggir skólaárið upp á sex lotum sem eru allar hluti af því sem við köllum kynjanámskrá Hjallastefnunnar. Loturnar skiptast í félagsfærnilotur og einstaklingsfærnilotur. Stúlkur þurfa alla jafna meiri einstaklingsþjálfun eins og að efla sjálfstæði og drengir þ...
Nú er aðlögun nýrra barna byrjuð og við erum svo heppin að fá um 50 nýjar vinkonur og vini í okkar góða hóp. Við skiptum hópunum í fernt, elstu börnin byrjuðu 16. ágúst, fyrsti yngri barna hópurinn kom svo sl. mánudag, næsti kemur 28. ágúst og síðasti hópurinn byrjar 4...
Nú hafa dásamlegu 5 ára börnin okkar kvatt Hjalla og hafið nám í Barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði. Það er svo sannarlega eftirsjá af þeim en þau eru í mjög góðum höndum og héldu stolt og glöð upp í skóla sl. miðvikudag.
Við þökkum þeim og fjölskyldum...
Í síðustu viku fóru elstu börnin á Hjalla í útskriftarferðir á Árbæjarsafn. Þar skoðuðum við sýninguna Komdu að leika en á sýningunni má sjá fjölda leikfanga frá ýmsum tímum í vörslu Borgarsögusafns Reykjavíkur. Þetta er upplifunarsýning með áherslu á s...
Foreldrafélag Hjalla býður börnum og foreldrum á Vorhátíð á Hjalla, fimmtudaginn 1. júní kl. 14.30-16.00
Boðið verður uppá hressingu og sirkusatriði og fjölskyldur skemmta sér saman. Takk frábæra foreldrafélag fyrir skemmtilegt framlag.
...