Innskráning í Karellen
news

30 ára afmæli Hjalla

25. 09. 2019

Þann 25. september árið 1989 tók Margrét Pála okkar við rekstri leikskólans Hjalla og markaði það upphafið að starfsemi Hjallastefnunnar. Hjalli og Hjallastefnan fagnar því 30 ára afmæli í dag!

VIð höfum haldið vikuna hátíðlega en í dag fögnum við sérstaklega.

Fjölskyldur hafa heiðrar okkur með nærveru sinni og komið í fjölskylduhressingar, vinir og velunnarar nær og fjæra koma í afmælisboð og í hádeginu fengu öll í Hjalla hátíðar-hádegisverð að hætti Sigurjóns, kokksins okkar.

Við erum afar stolt og þakklát af leikskólanum okkar og að vera hluti af því frábæra samfélagi sem Hjallastefnan er. Hér ríkir gleði, jákvæðni og kærleikur hverja mínútu og við styðjum hvert annað og aðstoðum í þroska, leik og starfi, hvort heldur sem um börn eða fullorðna er að ræða.

Innilega til hamingju með daginn Hjalli okkar!



© 2016 - Karellen